Frétt

Neytendasamtökin 70 ára

Í gær fagnaði hýsingaraðili ECC á Íslandi, Neytendasamtökin, 70 ára afmæli sínu.

Samtökin voru formlega stofnuð á fjölmennum fundi þann 23. mars 1953 þar sem lög samtakanna voru samþykkt og 25 manna stjórn skipuð.

Í janúar 2003 gerðu Neytendasamtökin samning við Viðskiptaráðuneytið um hýsingu á EEJ sem var forveri ECC. Þannig hafa samtökin hýst Evrópsku neytendaaðstoðina í rúmlega 20 ár.

Í tilefni afmælisins var Lilju Alfreðsdóttur ráðherra boðið í heimsókn á skrifstofu okkar að Guðrúnartúni.

(Lilja Alfreðsdóttir ráðherra neytendamála og Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna)

Þá bauð forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson,  til móttöku á Bessastöðum í tilefni afmælisins.

(Einar Bjarni Einarsson lögfræðingur hjá ECC á Íslandi, Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Ívar Halldórsson stjórnandi ECC á Íslandi)

Þar gafst okkur færi á að kynna ECC á Íslandi sem og að ræða um réttarstöðu neytenda innan Evrópu.

ECC á íslandi óska Neytendasamtökunum hjartanlega til hamingju með stórafmælið og þökkum afar farsælt samstarf síðustu 20 ár.

Þarftu aðstoð?

Deila frétt:

Fleiri fréttir

Ekið um Ítalíu – reikningur kom ári seinna

Þegar ferðaskrifstofur fóru að bjóða upp á „flug og bíl“ snemma á níunda áratugnum þótti það tíðindum sæta. Þessi ferðamáti…

Neytendasamtökin vara við viðskiptum við CC bílaleigu ehf.

Neytendasamtökin sjá sig knúin að vara fólk við að eiga viðskipti við bílaleiguna CC bílaleiga (City Car Rental). CC bílaleiga…

Svartur föstudagur: 7 góð ráð frá ECC-Netinu

Á svörtum föstudegi má gjarnan finna ýmis heillandi boð á ótrúlegum verðum. Þó eru ekki öll tilboð jafngóð og við…

World Consumer Rights Day: 5 Tips for Online Payments

On 15 March we celebrate World Consumer Rights Day. For the occasion, the European Consumer Centres Network shares five smart…

Neytendasamtökin og ECC á Íslandi í 20 ár

Nú í janúar eru 20 ár síðan Neytendasamtökin tóku við rekstri Evrópsku neytendaaðstoðarinnar (e. European Consumer Centre) á Íslandi með…

Black Friday – Góð ráð til að forðast netgildrur

Í ljósi vaxandi verðbólgu, vöruskorts og hækkandi orkuverðs þá má gera ráð fyrir því að Black Friday hafi nokkur áhrif…