Réttur neytenda og ferðalanga á úkraínsku

ECC í Pólandi hefur tekið saman upplýsingaskjöl um helstu réttindi neytenda sem talið er að geti komið flóttamönnum frá Úkraínu að gagni. Í upplýsingaskjölunum hér að neðan eru tekin saman helstu réttindi neytenda og ferðamanna. Yfirleitt er löggjöfin nokkuð sambærileg innan landa ESB (á Íslandi og Noregi), en það gæti í einhverjum tilvikum verið smá […]

Gleðilegan Evrópudag!

Evrópudagurinn er haldinn hátíðlegur 9. maí á hverju ári. En á þeim degi árið 1950 hélt Robert Schuman, sem var þá utanríkisráðherra Frakklands, sögulega yfirlýsingu þar sem hann lagði til að stofnað yrði evrópskt kola- og stálbandalags. Með þessari tillögu sá Robert Schuman fram á Evrópu lausa við stríð. Í gegnum tíðina hefur þetta samband […]

Svikapóstar í nafni ECC

ECC-Netið hefur fengið ábendingar um að óprúttnir aðilar hafa verið að senda svikapósta með nöfnum og lógóum hjá ECC stöðvum í Evrópu. Innihald póstana eru á þá leið að viðkomandi hafi lent í svikahröppum og er boðin aðstoð frá ECC-netinu. Þessir póstar eru svikapóstar og ekki sendir út af ECC-Netinu. Efni svikapóstanna Óprúttnir aðilar nota […]

Valentínusardagurinn – keypt á netinu

Allt frá sérsmíðuðum skartgripum til leðurbelta og gjafabréfa, þá eru ýmsar hugmyndir á netinu fyrir gjafir í tilefni Valentínusardagsins. Það er þó hætta á að kaupin sem keypt voru með ást í huga endi ekki eins og kaupandinn gerði ráð fyrir. ECC-Netið hefur því tekið saman nokkur ráð sem gott er að hafa í huga. […]

Kortabakfærslur vegna flugferða

Neytendur er greitt hafa með greiðslukorti fyrir vöru eða þjónustu sem var eða mun ekki vera veitt, eiga endurkröfurétt (e. chargeback) ef ástæðu vanefnda má rekja til seljanda. Þetta á t.d við ef flugi eða pakkaferð er aflýst af hálfu seljanda. Korthafi þarf einungis að sýna fram á það að vara eða þjónustu hafi ekki […]

Gleðilega hátíð!

Skrifstofa ECC á Íslandi verður lokuð eftirfarandi daga yfir hátíðirnar: 23. desember – Þorláksmessa 24. desember – aðfangadagur 31. desember- gamlársdagur Annars gildir hefðbundinn opnunartími. Við minnum á netfang okkar [email protected] þar sem þú getur sent okkur póst sem við svörum við fyrsta tækifæri.

Ný sameiginleg heimasíða ECC-Netsins komin í loftið!

Í dag fór í loftið ný og endurbætt sameiginleg heimasíða ECC-Netsins. Nýja heimasíðan, eccnet.eu, veitir upplýsingar um öll helstu atriði er varðar vandamál og kvartanir – hnitmiðað fyrir evrópska neytendur. Alþjóðlegur hópur frá ECC-Netinu tók höndum saman til að koma á laggirnar einskonar „miðstöð“ um neytendarétt og þar er einnig hægt að nálgast notendavænan stafrænan […]

Neytendadagatal

Nú er kominn desembermánuður og efalaust margir ungir (og jafnvel eldri) sem hafa fjárfest í aðventudagatali til að telja niður til jóla. ECC-Netið hefur ákveðið að vera með sitt eigið dagatal þar sem við birtum upplýsingar um helstu réttindi neytenda ásamt öðrum fróðleik. Dagatalið verður sett inn á Twittersíðu ECC á Íslandi en hægt er […]

Ársskýrsla 2020

Ársskýrsla ECC á Íslandi er komin út og má nálgast hana hér. Á árinu 2020 var gífurleg aukning á málum sem bárust ECC á Íslandi, en þá aukningu má að líkindum rekja til COVID-19 heimsfaraldursins og áhrifa hans á ferðalög. Nánari upplýsingar veitir Ívar Halldórsson, stjórnandi ECC á Íslandi

Czech Airlines úrskurðað gjaldþrota

Tékkneska flugfélagið Czech Airlines hefur verið úrskurðað gjaldþrota af dómstólum í Prag. Kröfuhafar hafa til 10. maí næstkomandi til að lýsa yfir kröfum í flugfélagið. Þeir neytendur sem eiga kröfur á flugfélagið (t.d. vegna endurgreiðslu á aflýstum flugum) geta lýst kröfu í þrotabúið með því að senda kröfuna í bréfpósti á heimilisfangið: Městský soud v […]