Your Future. Your Choice

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur nú hleypt af stað herferðinni „Þín framtíð. Þitt val“ (Your future. Your choice). Átakið felur í sér birtingu á fjórum myndböndum sem eiga að stuðla að því að neytendur innan Evrópusambandsins, í Noregi og á Íslandi taki betur upplýstar ákvarðanir í hinum ýmsu neytendamálum. Átakinu er hleypt af stað í dag, á […]

Barst jólagjöfin sem þú keyptir ekki til þín?

Ef þú pantaðir og greiddir fyrir vöru á netinu með kreditkorti þá getur þú fengið peninginn tilbaka ef hún berst aldrei til þín. Neytendur geta farið fram á bakfærslu á færslunni (e. chargeback) hjá bankanum sínum ef seljandi getur ekki sýnt fram á að vara hafi verið afhend. Hinsvegar er ekki hægt að fá bakfærslu […]

Ný heimasíða ECC-Netsins

Í tilefni á 15 ára starfsafmæli ECC-Netsins þá hefur verið opnuð ný og glæsileg sameiginleg heimasíða ECC, en slóðin á hana er www.eccnet.eu. Á heimasíðunni mun verða hægt að nálgast helstu upplýsingar um ECC-Netið, kynningarefni og annan fróðleik. Heimasíðan mun halda áfram í þróun með það að markmiði að auka aðgengi og þekkingu á ECC-Netinu og […]

Pakkaferðir

Alferð/Pakkaferð er samsettur pakki sem inniheldur alla vega tvö atriði af eftirtöldu: flutningi, gistingu eða annarri þjónustu við ferðamenn sem tekur til verulegs hluta ferðarinnar. Þá er það skilgreiningaratriði að þjónustan taki til alla vega 24 klukkustunda eða að í henni felist gisting. Dæmigerðar sólarlandaferðir sem keyptar eru í einum pakka (iðulega flug og gisting […]

Hættur vegna ólöglegs niðurhals og hvernig er hægt að bregðast við þeim

Í tilefni af 15 ára afmæli ECC-Netsins þá hefur netið ákveðið að taka sérstakt málefni fyrir í hverjum mánuði. Í júnímánuði þá verður sjónum beint að ólöglegu niðurhali og streymisveitum á netinu. Streymisnotkun hefur aukist gífurlega síðustu árin og margir sem nýta sér þann valkost. Óprúttnir aðilar hafa séð sér leik á borði og hafa […]