Ef flugi er seinkað eða aflýst um ákveðinn tíma þá koma til skoðunar ákvæði Evrópureglugerðar nr. 261/2004 um réttindi flugfarþega. Reglugerðin getur verið nokkuð flókin, enda getur skipt máli hversu löng seinkunin er, hversu löngu fyrir brottför var tilkynnt um aflýsingu, hversu löng er flugleiðin o.s.frv.
Af þeim sökum hefur ECC á Íslandi í samstarfi við norska neytendaráðið veitt aðgang að „Flugreikni“ þar sem farþegar geta slegið inn forsendur sinna flugraskana og séð með einföldum hætti hver réttarstaðan er. Hægt er að nálgast flugreikninn á íslensku og ensku hér fyrir neðan.
Burtséð frá ástæðunni fyrir seinkun eða aflýsingu (jafnvel þó aflýst sé vegna verkfalls, veðurs eða náttúruhamfara) eiga flugfarþegar rétt á ákveðinni aðstoð frá flugrekanda, t.a.m. máltíðum og gistingu sé hennar þörf.
Samkvæmt reglugerðinni skal farþegum boðið eftirfarandi endurgjaldslaust þegar um er að ræða seinkun um tiltekinn tíma eða aflýsingu flugs eða ef farþega er neitað um far, t.a.m. vegna yfirbókunar:
a) máltíðir og hressing í samræmi við lengd tafarinnar,
b) hótelgisting,
— ef farþegi neyðist til að bíða eina eða fleiri nætur eftir fari,
eða
— ef farþegi neyðist til að bíða lengur en hann gerði ráð fyrir,
c) flutning á milli flugvallar og gistiaðstöðu (hótel eða annað).
2. Þar að auki skal farþegum boðið að hringja tvö símtöl eða senda skilaboð um fjarrita eða bréfsíma eða með tölvupósti, þeim að kostnaðarlausu.
Ef seinkun er minni en tveir tímar í flugi sem er 1.500 km. eða styttra, minni en þrír tímar í flugi sem er 1.500-3.500 km. (flest Evrópuflug), eða minni en fjórir tímar í annars konar flugi stofnast þó enginn réttur samkvæmt reglugerðinni.
Ef farþegar þurfa sjálfir að kaupa sér máltíðir eða gistingu, þar sem flugrekandi býður þessa aðstoð ekki fram, eða ef erfitt er að fá skýr svör frá honum, er mikilvægt að passa vel upp á allar kvittanir svo hægt sé að fara fram á endurgreiðslu síðar.
Ef flugi er aflýst eða farþegum er neitað um far eiga farþegar að hafa val um:
a) að fá innan sjö daga endurgreitt að fullu, eftir þeim leiðum sem kveðið er á um í 3. mgr. 7. gr. (þar er talað um að greiðsla skuli fara fram í reiðufé, með millifærslu, í gíró eða með bankaávísun nema farþeginn samþykki annað), upprunalegt verð farmiðans fyrir þann hluta ferðarinnar sem ekki var farinn og fyrir einn eða fleiri hluta ferðarinnar sem farnir hafa verið ef flugið þjónar engum tilgangi lengur með hliðsjón af upprunalegri ferðaáætlun farþegans og, ef við á, flug til baka til fyrsta brottfararstaðar eins fljótt og auðið er,
eða
b) að breyta flugleið, með sambærilegum flutningsskilyrðum, til lokaákvörðunarstaðar eins fljótt og auðið er
eða
c) að breyta flugleið, með sambærilegum flutningsskilyrðum, og komast til lokaákvörðunarstaðar síðar meir, við fyrstu hentugleika fyrir farþegann, með fyrirvara um sætaframboð.
Þegar um a.m.k. fimm klukkustunda seinkun er að ræða eiga farþegar rétt á því sem talið er upp í a) hér að framan, þ.e. að fá endurgreiðslu og flug til baka til fyrsta brottfararstaðar ef við á auk endurgreiðslu þeirra flugleggja sem reynast tilgangslausir vegna seinkunarinnar.
Einfaldasta dæmið er vitaskuld það ef farþegar vilja hætta við flug, og fá það endurgreitt, eftir að ljóst er að seinkun frá Keflavík verður alla vega fimm tímar.
Flóknara dæmi er hins vegar ef ætlunin er t.d. að fara til Portúgal með millilendingu í Danmörku, en flugið frá Danmörku tefst svo mikið að það þjónar engum tilgangi fyrir farþegann að fara til Portúgal lengur. Þá á hann rétt á endurgreiðslu alls flugsins (bæði leggsins til Danmerkur og þaðan til Portúgal) auk þess sem hann á rétt á flugi aftur til baka til Íslands.
Í sumum tilvikum geta farþegar jafnframt, auk aðstoðar í formi máltíða og gistingar og endurgreiðslu eða nýrrar flugferðar, krafist skaðabóta vegna aflýsingar eða langrar seinkunar, en upphæðin fer eftir lengd flugsins sem um ræðir.
Upphæðirnar eru:
• 250 evrur fyrir öll flug sem eru 1.500 km eða styttri
• 400 evrur fyrir öll flug innan EES sem eru lengri en 1.500 km og fyrir öll önnur flug á bilinu 1.500 og 3.500 km
• 600 evrur fyrir öll flug sem ekki falla í flokkana tvo fyrir ofan.
Flugrekandi getur verið laus undan skaðabótaábyrgð ef hann sýnir fram á að seinkunin eða aflýsingin hafi verið af völdum óviðráðanlegra aðstæðna sem ekki hefði verið hægt að koma í veg fyrir jafnvel þótt allar nauðsynlegar ráðstafanir hefðu verið viðhafðar. Þetta þýðir að þegar seinkun eða aflýsing er af völdum einhvers sem flugrekandi hefur ekki stjórn á, er hann laus undan skaðabótaskyldu. Þetta á við þegar slæm veðurskilyrði hamla flugumferð, þegar náttúruhamfarir eins og eldgos eru, þegar tekin er ákvörðun í flugumferðarstjórn að stöðva flug, þegar um styrjaldir, hryðjuverk eða aðrar svipaðar aðstæður er að ræða. Flugrekandi er almennt ekki laus undan skaðabótaskyldu ef seinkun eða aflýsing er af völdum tæknilegra vandamála sem algeng eru í rekstri flugvéla. Þá gildir þetta bara um skaðabótaskylduna, en réttur farþega til máltíða, gistingar o.s.frv. er eftir sem áður til staðar.
Jafnframt er flugrekandi laus undan skaðabótaskyldu ef tilkynnt er um aflýsinguna með ákveðnum fyrirvara, þ.e. farþegar eiga rétt á skaðabótum nema: þeim sé tilkynnt um að viðkomandi flugi sé aflýst a.m.k. tveimur vikum fyrir áætlaða brottför
eða
þeim sé tilkynnt tveimur vikum til sjö dögum fyrir áætlaða brottför að fluginu sé aflýst og boðið að breyta flugleið sinni sem gerir þeim kleift að leggja af stað innan tveggja klukkutíma fyrir áætlaðan brottfarartíma og komast á lokaákvörðunarstað innan fjögurra klukkustunda eftir áætlaðan komutíma
eða
þeim sé tilkynnt minna en sjö dögum fyrir áætlaða brottför að fluginu sé aflýst og boðið að breyta flugleið sinni, sem gerir þeim kleift að leggja af stað innan klukkustundar fyrir áætlaðan brottfarartíma og komast á lokaákvörðunarstað innan tveggja klukkustunda eftir áætlaðan komutíma.
Hvað sem þessum reglum líður ber flugrekanda svo eftir sem áður að bjóða farþegum aðstoð á borð við hressingu og gistingu sé þörf á slíku vegna aflýsingarinnar.
Hvað þurfa farþegar að hafa í huga þegar farangur týnist, tefst eða tjónast? Hver er réttarstaðan og hvert skal beina kvörtunum? Hér að neðan má finna svör við helstu spurningum.
Ef þú sérð að farangur þinn hefur tjónast þegar þú sækir hann á farangursbeltinu á komuflugvelli farðu beint til þjónustuborðs flugfélagsins í töskumóttökusalnum til að tilkynna og skrá hinn tjónaða farangur.
Þjónustuborðið lætur þig fá tjónaskýrslu (Passenger Irregularity Report – PIR) ásamt persónulegu tilvísunarnúmeri. Fylltu út PIR-skýrsluna á þjónustuborðinu og óskaðu eftir afriti. Þú munt þurfa að hafa skýrsluna og númerið til að leggja fram kröfu til flugfélagsins.
Ef að taska þín skemmist eða eyðileggst í flugi að þá getur þú sent kröfu á flugfélagið fyrir verðmæti töskunnar og innihaldi hennar sem skemmdist. Þú ættir að senda skriflega kröfu á flugfélagið innan 7 daga frá því þú fékkst töskuna og senda allt sem þú hefur til að sýna fram á verðmæti tjónsins (myndir af skemmdum farangri, kvittanir fyrir kaupum, o.s.frv.).
Samkvæmt Montréal sáttmálanum geta flugfélög verið ábyrg fyrir allt að 1.600 EUR á hvern farþega.
Þú gætir þó átt rétt á hærri bótum samkvæmt lögum viðkomandi lands.
Ef farangurstaska verður fyrir „eðlilegum“ skemmdum (svo sem rispum, dældum o.s.frv.) sem fylgir því að flytja þær í flugvélum að þá taka flugfélög almennt ekki ábyrgð á því.
Ef þú sérð að farangur þinn hefur tjónast þegar þú sækir hann á farangursbeltinu á komuflugvelli farðu beint til þjónustuborðs flugfélagsins í töskumóttökusalnum til að tilkynna og skrá hinn tjónaða farangur.
Töf á farangri – er þegar farangur berst ekki á töskubandinu en er komið til þín innan 21 dags.
Tapaður farangur – litið er á farangur sem tapaðan ef flugfélag viðurkennir að hann sé tapaður eða ef farangrinum er ekki komið til þín innan 21 dags.
Þjónustuborðið í töskumóttökusalnum lætur þig fá tjónaskýrslu (Passenger Irregularity Report – PIR) ásamt persónulegu tilvísunarnúmeri. Fylltu út PIR-skýrsluna á þjónustuborðinu og óskaðu eftir afriti. Þú munt þurfa að hafa skýrsluna og númerið til að leggja fram kröfu til flugfélagsins.
Ef þú þarft að kaupa helstu nauðsynjavörur (snyrtivörur, nærföt o.s.frv.) á meðan farangur þinn er týndur þá átt þú rétt á því að fara fram á endurgreiðslu til flugfélagsins. Gættu að því að halda utanum allar kvittanir og reikninga, þar sem þú þarft að framvísa þeim þegar þú óskar eftir endurgreiðslu á vörunum.
Týndist farangur þinn á leiðinni heim? Flugfélög munu ekki endurgreiða vörur sem þú átt að öllum líkindum til heima hjá þér. Þau munu einungis endurgreiða nauðsynleg kaup (svo sem lyf, og (ef við á) varning sem þú þarft vegna sérstaks tilefnis), að því gefnu að þú getir sýnt fram á það með fullnægjandi hætti.
Samkvæmt Montréal sáttmálanum geta flugfélög verið ábyrg fyrir allt að 1.600 EUR á hvern farþega.
Þú gætir þó átt rétt á hærri bótum samkvæmt lögum viðkomandi lands.
Ef þú ætlar að senda inn kröfu til flugfélagsins að þá ráðleggjum við þér að gera eftirfarandi:
Ef farangurinn tefst þá hefur þú 21 dag frá því þú fékkst hann afhentan til að leggja fram skriflega kröfu til flugfélagsins og óska eftir endurgreiðslu á helstu nauðsynjavörum sem þú þurfti að kaupa. Yfirleitt er hægt að senda slíka kröfu á netinu á heimasíðu flugfélagsins.
Farangur er opinberlega talinn tapaður ef ekki hefur tekist að finna hann 21 degi eftir að hann týndist. Hefur farangur þinn ekki borist innan 21 dags – eða viðurkenndi flugfélagið að hann væri tapaður? Þá gætir þú átt rétt á bótum fyrir tjónið allt að 1.600 EUR, eftir verðmæti farangursins.
Hafðu í huga að í tilviki tapaðs farangurs að flugfélög taka gjarnan tillit til þess ef um er að ræða notaðan varning sem tapast í farangrinum. Þannig er gjarnan tekin afföll og aðeins endurgreitt verðmæti varningsins á tjónadegi.
Flugfélög verða að endurgreiða þér þau nauðsynlegu útgjöld sem þú getur sýnt fram á að þú hafir orðið fyrir, allt að 1.600 EUR.
Samkvæmt Montréal sáttmálanum geta flugfélög verið ábyrg fyrir allt að 1.600 EUR á hvern farþega.
Þú gætir þó átt rétt á hærri bótum samkvæmt lögum viðkomandi lands.
Ef farangur þinn týnist þá hefur flugfélagið 21 dag til að finna hann og koma honum til þín.
Ef þú færð farangurinn innan 21 dags þá getur þú samt sem áður farið fram á endurgreiðslu á þeim kostnaði sem flugfélag ber ábyrgð á (helstu nauðsynjavörur). Ef þú færð ekki farangurinn innan þess frests þá getur þú sótt um bætur fyrir tapaðs farangurs.
Flest flugfélög fara eftir ofangreindum kvörtunarfrestum. Þú ættir samt alltaf að kanna málið hjá flugfélaginu til að vera viss um hvaða tímafrestir eigi við.