Frétt

Hvað segja stjörnurnar?

iStock-Agustin Crespo Moreno

Stjörnuflokkun er ætlað að hjálpa ferðamönnum að meta þjónustustig og aðbúnað á hótelum. Almennt er flokkunin frá einni stjörnu og upp í fimm, þar sem ein stjarna gefur til kynna einfalda gistingu og takmarkaða þjónustu, en fleiri stjörnur þýða aukin gæði, meiri þjónusta og betri aðstaða.

Fjöldi stjarna getur tekið mið af:

    • Opnunartíma móttöku

    • Þægindum og aðbúnaði á herbergjum (t.d. sjónvarpi, míníbar, stærð og gæðum rúma, baðherbergisaðstöðu, gluggatjöldum, lýsingu o.fl.)

    • Þrifum og hreinlæti

    • Aðgengi að veitingaþjónustu

    • Aðstöðu og búnaði eins og t.d. lyftu, svítum, bar, líkamsræktaraðstöðu, ráðstefnusal, sundlaug, heitum potti o.fl.  

Stjörnuflokkun ekki samræmd milli landa

Ekki er til neitt eitt alþjóðlegt gæðaflokkunarkerfi fyrir hótel og því mismunandi hvaða viðmið liggja að baki stjörnugjafar. Það eru þó hagsmunir hótela að stjörnugjöf sé samræmd og neytendur viti að hverju þeir ganga. Í Evrópu eru starfrækt samtök sem heita Hotelstars Union og sjá þau um að samræma stjörnugjöf hótela innan Evrópu. Í dag er 21 þátttökuland í samtökunum og er markmiðið að tryggja gagnsæi fyrir ferðamenn. Í sumum löndum eru gæðaviðmiðin aftur ákveðin af innlendum stjórnvöldum eða samtökum hótela. Algengt er þá að viðmið Hotelstars Union liggi til grundvallar. Það er einmitt tilfellið á Íslandi.

Vakinn er eina viðurkennda hótelflokkunarkerfið hér á landi en það byggir á gæðaviðmiðum evrópska Hotelstars-kerfisins. Vakinn er meira en flokkunarkerfi fyrir hótel því það er gæða- og umhverfisvottun fyrir íslenska ferðaþjónustu og er stýrt af Ferðamálastofu.

Stjörnugjöf á bókunarsíðum

Mjög hefur færst í vöxt að neytendur bóki hótelgistingu í gegnum bókunarsíður en ekki beint af hótelunum sjálfum. Hér er mikilvægt að hafa í huga að stjörnugjöf bókunarsíðna byggist ekki endilega á tilteknum flokkunarkerfum. Stjörnur geta vísað til umsagna neytenda eða verið hreinn tilbúningur. 

Á Booking vísar stjörnugjöfin yfirleitt til upplýsinga frá hótelunum sjálfum. Til að sjá hvaða flokkunarkerfi tiltekið hótel styðst við þarf síðan að skoða vefsíðu hótelsins. Einkunnagjöf á vef Booking byggist hins vegar á umsögnum neytenda og ætti ekki að rugla henni saman við stjörnugjöfina.

Þarftu aðstoð?

Deila frétt:

Fleiri fréttir

Ekið um Ítalíu – reikningur kom ári seinna

Þegar ferðaskrifstofur fóru að bjóða upp á „flug og bíl“ snemma á níunda áratugnum þótti það tíðindum sæta. Þessi ferðamáti…

Neytendasamtökin vara við viðskiptum við CC bílaleigu ehf.

Neytendasamtökin sjá sig knúin að vara fólk við að eiga viðskipti við bílaleiguna CC bílaleiga (City Car Rental). CC bílaleiga…

Svartur föstudagur: 7 góð ráð frá ECC-Netinu

Á svörtum föstudegi má gjarnan finna ýmis heillandi boð á ótrúlegum verðum. Þó eru ekki öll tilboð jafngóð og við…

Neytendasamtökin 70 ára

Í gær fagnaði hýsingaraðili ECC á Íslandi, Neytendasamtökin, 70 ára afmæli sínu. Samtökin voru formlega stofnuð á fjölmennum fundi þann…

World Consumer Rights Day: 5 Tips for Online Payments

On 15 March we celebrate World Consumer Rights Day. For the occasion, the European Consumer Centres Network shares five smart…

Neytendasamtökin og ECC á Íslandi í 20 ár

Nú í janúar eru 20 ár síðan Neytendasamtökin tóku við rekstri Evrópsku neytendaaðstoðarinnar (e. European Consumer Centre) á Íslandi með…